Live stream preview
Á mannlegum nótum með Heimi Gunnarssyni - Gestur Göran Häggberg
Next up
•
1h 47m
Í tilefni af 50 ára afmæli sænska íslandshestafélagsins settist núverandi ræktunarleiðtogi Svíþjóðar Heimir Gunnarsson niður með fyrrverandi ræktunarleiðtoganum Göran Häggberg og fóru þeir vítt og breitt yfir sögu íslenska hestsins í Svíþjóð.
Göran, 94 ára gamall, er einn af helstu frumkvöðlum Svíþjóðar og faðir þeirra Peter Häggberg og Johan Häggberg sem báðir voru lengi vel meðal helstu reiðmanna þar í landi og eru í dag starfandi alþjóðlegir íþróttadómarar. Göran fer í viðtalinu yfir æfi sína sem að stórum hluta er samofin þróun íslandshestamennskunnar í Svíþjóð og segir frá kómískum uppákomum í tengslum við hestakaup, dómstörf og fleira.
Viðtalið er á sænsku en er birt bæði með íslenskum og enskum texta.