Frumtamning með Benedikt Líndal - ALGER KLASSÍK !
Frumtamning með Benedikt Líndal
•
1h 7m
Frumtamning með Benedikt Líndal – Myndband frá árinu 2004
Farið er skref fyrir skref í tamningaferil sem spannar um 3 mánuði og lögð áhersla á að sýna hlutina á faglegan og skýran hátt þannig að sem flestir hafi gagn og gaman af. Tamningaferillinn er byggður á áratuga reynslu og faglegri þekkingu Benedikts og annarra.
Eðlisþarfir hestsins eru hafðar í huga og maðurinn kemur með sinn þátt inn í tamninguna út frá forsendum hestsins þannig að hesturinn verður sáttari. Tamningaferillinn er tiltölulega einfaldur og eitt leiðir til annars.
Hesturinn skilur og samþykkir það sem hann er að læra og temst því hraðar og betur. Með þessari leið má einnig komast hjá átökum og vandamálum, sem yfirleitt orsakast vegna misskilnings milli manns og hests, traust myndast og varanlegur grunnur er lagður fyrir áframhaldandi þjálfun.
Tónlistin í myndinni er frumsamin og flutt af hinum þekkta hestafréttamanni og lífkúnstler Jens Einarssyni.
Gaman að horfa á – Auðvelt að skilja – Árangursríkt til eftirbreytni
Up Next in Frumtamning með Benedikt Líndal
-
Frumtamning með Benedikt Líndal - Ein...
Grundausbildung mit Benedikt Líndal – Video aus dem Jahr 2004
Der rund dreimonatige Trainingsprozess wird Schritt für Schritt vorgestellt. Im Mittelpunkt steht die professionelle und anschauliche Vermittlung der Techniken, sodass die Inhalte für ein breites Publikum sowohl lehrreich als auch unt...
-
Frumtamning med Benedikt Líndal - En ...
Inledande inridning med Benedikt Líndal – Video från 2004
Filmen guidar dig steg för steg genom en träningsprocess som sträcker sig över cirka tre månader. Teknikerna visas på ett tydligt och professionellt sätt, vilket gör materialet både lärorikt och underhållande. Träningsmetoden bygger på må...
-
Frumtamning með Benedikt Líndal - A T...
In this video Benedikt Líndal opens the doors to his training center in Iceland and allows the audience to follow him and his work with several horses through a whole training season.
He continues from where he left off in his last video “Starting Horses”, and shows the audience different effec...