Bændafundir Líflands - Hella 5. Des
2h 12m
Lífland boðar til bændafunda dagana 2.-5. desember undir yfirskriftinni „Kálfar, kraftmikið vothey og kjarngott fóður“.
Lokafundurinn verður á Stracta hóteli á Hellu fimmtudaginn 5. desember kl. 20:00 og í beinni útsendingu hjá Eiðfaxa.
Horft verður til undirstöðuatriða mjólkurframleiðslunnar og mun Hans Wansink sérfræðingur frá Trouw Nutrition fjalla um kálfaeldi og það hvernig fóðrun og atlæti hefur áhrif á framleiðni og endingu mjólkurkúa. Með honum í för verður Gerton Huisman sem mörgum er að góðu kunnur. Þvínæst verður fjallað um heyverkun með áherslu á hvernig gott gróffóður og vothey verður til og hvaða hlutverk það leikur í afurðaseminni og munu Luco Zantinge og Martijn Kirghof frá Visscher Holland flytja þetta erindi. Að lokum munu Gabríela María Reginsdóttir og Ásdís Ólafsdóttir fóðurráðgjafar hjá Líflandi fjalla um niðurstöður heysýna og kjarnfóðurúrval Líflands.
Þessi fundur verður einnig i beinu streymi á vefnum.