Þjálfun með Benedikt Líndal - ALGER KLASSÍK !
Þjálfun með Benedikt Líndal
•
1h 21m
Þjálfun með Benedikt Líndal - Myndband frá árinu 2006
Í þessu myndbandi opnar Benedikt Líndal dyrnar á tamningastöð sinni og leyfir áhorfendum að fylgjast með þjálfun nokkurra hrossa í u.þ.b. eitt þjálfunartímabil. Hann heldur áfram þar sem frá var horfið í fyrra myndbandi sínu um frumtamningu og sýnir hér áhorfendum ýmsar áhrifaríkar leiðir sem hann notar í framhaldsþjálfun.
Komið inn á mikilvægi fjölbreyttra vinnubragða, þjálfun gangtegunda, hvernig við getum skapað jákvæða stemmningu til að viðhalda vinnugleðinni og auka árangur, rétta notkun stangaméla o.m.fl.
Með því að byggja upp gagnkvæmt traust og virðingu og með vinnubrögðum sem hesturinn skilur og samþykkir skapast grundvöllur til að laða fram það besta í hverjum einstökum hesti, hvort heldur um er að ræða fjölskyldu eða keppnishest. Markmiðið með þjálfuninni er að hesturinn verði vel taminn, þjáll og mjúkur, léttur í beisli, næmur, líkamlega sterkur og öruggur á mismunandi gangi.
Tónlistin í myndinni er frumsamin og flutt af hinum þekkta hestafréttamanni og lífkúnstler Jens Einarssyni.
Up Next in Þjálfun með Benedikt Líndal
-
Þjálfun með Benedikt Líndal - Ein abs...
Training mit Benedikt Líndal – Video aus dem Jahr 2006
In diesem Video gewährt Benedikt Líndal Einblicke in sein Trainingszentrum und lässt die Zuschauer miterleben, wie verschiedene Pferde über eine gesamte Trainingssaison hinweg ausgebildet werden. Er knüpft dabei an sein früheres Video zur Gr...
-
Þjálfun med Benedikt Líndal - En rikt...
I den här videon öppnar Benedikt Líndal dörrarna till sitt träningscenter och låter tittarna följa träningen av flera hästar under en hel säsong. Han tar vid där hans tidigare video om grundträning slutade och visar olika effektiva metoder för avancerad träning.
Bland ämnena märks vikten av vari...
-
Þjálfun með Benedikt Líndal - A TRUE ...
Training with Benedikt Líndal – Video from 2006
In this video, Benedikt Líndal opens the doors to his training center, allowing viewers to follow the training of several horses over the course of a training season. Picking up where his previous video on initial training left off, he demonstrates...